Heim
Leita

Stóra svið

Ung­frú Ís­land

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Lengd

-

Verð

7.800 kr.

Næstu sýningar

2.sýning18. janúar kl. 20:00
3.sýning23. janúar kl. 20:00
4.sýning24. janúar kl. 20:00
5.sýning01. febrúar kl. 20:00
Allar sýningar

Ung­frú Ís­land

Ungfrú Ísland - verðlaunaskáldsaga Auðar Övu

Verðlaunaskáldsaga Auðar Övu birtist hér ljóslifandi á Stóra sviðinu í mögnuðu sjónarspili. Hekla þráir að skrifa en það reynist fjarlægur draumur fyrir unga konu á Íslandi rétt eftir miðbik síðustu aldar. Draumurinn er enn fjarlægari fyrir Íseyju, sem er gift og komin með barn og eru sjálfkrafa allar bjargir bannaðar. Bara að fá að vera til á eigin forsendum virðist utan seilingar og hið sama upplifir hinn ungi Jón John.

Ungfrú Ísland er kyngimögnuð saga sem gerist á barmi byltinga, fangar tíðaranda og tilfinningar. Þetta er saga um baráttu fólks fyrir höfundarétti á eigin lífi á tímum þegar sjálfstæði kvenna og hinseginleiki voru þyrnar í augum íhaldsams samfélags, barátta sem enn er háð í dag. En þetta er einnig saga um sjálfan sköpunarkraftinn, lífsviljann og ævarandi leit að betri heimi, þar sem allt það sem ekki er orðið til kraumar undir yfirborðinu og brýtur sér leið í ljósið með tilheyrandi titringi og átökum.

Ritsnilld Auðar Övu er landsmönnum að góðu kunn og hér má finna leiftrandi húmor, þungan harm og heillandi fegurð. 

Listrænir stjórnendur

Höfundur

Auður Ava Ólafsdóttir

Leikmynd

Kristinn Arnar Sigurðsson

Lýsing

Pálmi Jónsson

Leikgerð

Bjarni Jónsson

Búningar

Filippía Elísdóttir

Hljóð

Unnsteinn Manuel Stefánsson og Jón Örn Eiríksson

Leikstjóri

Gréta Kristín Ómarsdóttir

Tónlist

Unnsteinn Manuel Stefánsson

Leikgervi

Elín S. Gísladóttir

Auður Ava Ólafsdóttir, rithöfundur

Auður Ava Ólafsdóttir, rithöfundur, gerði sér ferð í Borgarleikhúsið til að ræða við Maríönnu Clöru Lúthersdóttur um Ungfrú Ísland.
Lesa meira.
Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logoorkusalan logoölgerðin logo