Þórunn Arna Kristjánsdóttir útskrifaðist frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2006 og fjórum árum síðar lauk hún BFA gráðu frá leiklistardeild sama skóla. Frá útskrift hefur Þórunn unnið bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu. Meðal nýlegra verkefna hennar má nefna Fyrrverandi, Macbeth, Fúsa og X. Hún hefur einnig leikstýrt sýningunum Ofurhetjumúsinni, Emil í Kattholti og Fíasól gefst aldrei upp sem og skrifað leikgerðir. Þórunn hefur hlotið tilnefningar til Grímunnar bæði fyrir leik og söng, nú síðast fyrir leik sinn í X.
Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500
Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is
Takk fyrir stuðninginn
Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.