Heim
Leita

Stóra svið

Árið án sum­ars

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Verð

7.800 kr.

Næstu sýningar

Frumsýning31. janúar kl. 20:00
2. sýning09. febrúar kl. 20:00
Allar sýningar

Árið án sum­ars

Rómantísk hrollvekja um vináttu og veður

Hópur ungskálda bíður af sér óvenjulegan sumarstorm í sveitasetri við Genfarvatn. Þau drepa tímann með ýmsum óhugnaði en þetta kvöld er eitthvað annað og meira sem ásækir þau en bara skáldskapur.

Hinn umtalaði leikhópur Marmarabörn snýr aftur á svið með síðasta hluta hamfara-þríleiks síns. Fyrri sýningar hópsins, Að flytja fjöll í þremur atrennum og Eyður, hlutu mikið lof áhorfenda og gagnrýnenda og hafa verið sýndar víða um heim. Marmarabörn stefna saman tilraunamennsku og hefðum leikhúsformsins til þess að setja á svið tímalausar sögur á áhrifaríkan og leikandi hátt.

Árið án sumars er ögrandi sjónarspil innblásið af raunverulegum atburðum sem áttu sér stað árið 1816 sem er betur þekkt sem árið án sumars. Höfuðskáld Rómantíkurinnar ætluðu sér að sleikja sólina við Genfarvatn en þurftu oft að verja tíma innandyra vegna veðurs því eldgos hinum megin á hnettinum hafði valdið óvenjulegu gjörningaveðri. Ýmis bókmenntaverk urðu til í þessari afdrifaríku sumardvöl, þar má nefna Frankenstein eftir Mary Shelley, Vampíruna
(e. The Vampyre) eftir John Polidori og sum þekktustu ljóð Byrons lávarðar.

Eins og þegar Viktor Frankenstein horfðist í augu við skelfilegt sköpunarverk sitt eða líkt blóðþyrstri vampíru sem svífur á fórnarlamb, stöndum við nú líka andspænis ógurlegri afturgöngu: afleiðingum gjörða okkar í formi loftslagsbreytinga.

Stutt af: Rosendal Teater, Reykjavík Dance Festival, MASQ og Listaháskóla Íslands

Styrkt af: Sviðslistasjóði, Listamannalaunum, Norræna Menningarsjóðnum, Norrænu Ráðherranefndinni og Reykjavíkurborg.

Listrænir stjórnendur

Höfundur og leikstjórn

Leikhópurinn Marmarabörn

Leikmynd og búningar

Guðný Hrund Sigurðardóttir

Tónlist

Gunnar Karel Másson

Dramatúrg

Igor Dobričić

Aðstoðarleikstjórn

Birnir Jón Sigurðsson

Framkvæmdarstjórn

MurMur/Kara Hergils

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logoorkusalan logoölgerðin logo