Ein ástsælasta ópera allra tíma
Kammeróperan í samstarfi við Borgarleikhúsið setur upp hina sívinsælu gamanóperu Brúðkaup Fígarós eftir Mozart í nýrri íslenskri þýðingu Bjarna Thors Kristinssonar.
Greifinn og greifynjan eru ungt og upprennandi athafnafólk sem hefur tekist hið ómögulega og byggt upp farsæla starfsemi í kringum vínrækt í Mosfellsbæ, en ekki er allt sem sýnist í þessari paradís. Þó að óperan sé í grunnin kómísk þá eru þar samt sterkir samfélagslegir þættir sem tala til okkar í dag og það er spennandi áskorun að yfirfæra þann hluta verksins yfir á nútímasamfélag. Í þessari útgáfu óperunnar láta starfsmenn vínræktuninnar óréttlæti og kynferðislega áreitni greifans ekki viðgangast og snúa á yfirmann sinn (með aðstoð greifynjunnar) til að sýna honum í tvo heimana.
Áhorfendur eru dregnir inn í heim óperunnar strax og þeir mæta í leikhúsið en áður en sýningin sjálf hefst býðst gestum að taka þátt í vínsmökkun sem greifinn stendur fyrir.*
Verkið er styrkt af Sviðslistasjóði.
*Ath. að vínsmakk er ekki innifalið í miðaverði.