Pálmi Gestsson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1982 og hefur síðan þá leikið fjölda hlutverka hjá bæði Leikfélagi Reykjavíkur og Þjóðleikhúsinu auk þess að eiga að baki langan og farsælan feril í kvikmyndum og sjónvarpi – m.a. í Spaugstofunni. Lengst af hefur Pálmi verið fastráðinn hjá Þjóðleikhúsinu en meðal nýlegra verkefna þar má nefna Eddu, Verkið og Draumaþjófinn. Pálmi var tilnefndur til Grímunnar fyrir leik sinn í Ör, Jónsmessunæturdraumi, Hænuungunum og Fyrirheitna landinu.
Takk fyrir stuðninginn
Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.