Nýja svið

Tjald­ið

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Nýja svið

Lengd

50 mín

Verð

Leikhópurinn Miðnætti er barnafjölskyldum að góðu kunnur enda hefur hann á síðustu árum sett upp fjölmargar metnaðarfullar og stórskemmtilegar sýningar fyrir börn á öllum aldri. Hér má t.d. nefna Geim-mér-ei, Á eigin fótum og sýningar og sjónvarpsþætti um álfana dásamlegu Þorra og Þuru. Nú er Miðnætti mætt í Borgarleikhúsið með undurfallega sýningu fyrir allra yngstu leikhúsgestina.

Tjaldið er upplifunarleikhús fyrir börn frá þriggja mánaða til þriggja ára – sem og foreldra þeirra og forráðamenn. Hér verður boðið upp á litla veislu fyrir skynfærin þar sem börnin fá að skyggnast undir leikhústjaldið og upplifa tóna, liti og snertingu sem bæði örvar, þroskar og gleður andann.

Athugið að ekki er stuðst við móðurmál í sýningunni svo hún er ætluð öllum börnum óháð tungumáli. Eftir sýningu verður í boði að setjast fram í forsal leikhússins og njóta veitinga og notalegrar stundar með börnunum.

Í samstarfi við leikhópinn Miðnætti.

Verkefnið er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneyti — Sviðslistaráði.

Frumsýning 17. september 2022 á Nýja sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Nick Candy

Sigrún Harðardóttir

Listrænir stjórnendur

Höfundar

Agnes Wild / Sigrún Harðardóttir / Nick Candy / Eva Björg Harðardóttir

Leikstjórn

Agnes Wild

Tónlist / hljóð

Sigrún Harðardóttir

Leikmynd / búningar / leikgervi

Eva Björg Harðardóttir

Lýsing

Ólafur Ágúst Stefánsson / Juliette Louste

Sviðshreyfingar

Juliette Louste

Framkvæmdastjórn

Kara Hergils

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logoorkusalan logoölgerðin logo