Nýja svið

Mandó­lín og tangodív­ur

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Nýja svið

Lengd

60 mín

Verð

5.900 kr.

Næstu sýningar

Allar sýningar

Mandó­lín og tangodív­ur

Mandólín & tangódívur: Aukasýning 1. mars

Tónleikar og tangósýningÚr dimmri janúarþokunni berast dulúðugir tónar. Takturinn þéttist, myndin skýrist, og í ljós kemur gleðisveitin Mandólín. Fjörug tangótónlist tekur völdin, og tangóparið Bryndís og Hany birtist. Saman leiða þau okkur í gegnum dásamlega kvöldstund í faðmi tónlistarinnar. Þar sameinast söngur og dans, tregafullt klarínettusóló, púlserandi harmonikkusláttur og fjörugar fiðlur. Sérstakur gestur tónleikanna er söngkonan Kristjana Arngrímsdóttir.

Takið með ykkur tangóskóna, því að tónleikunum loknum verður slegið upp tangóballi með DJ Þórði.

Gleðisveitin Mandólín spilar tónlist sem á rætur í hinum ýmsu heimshornum og flæðir þaðan frá hjarta til hjarta. Þetta er tónlist sem vekur tilfinningar úr dvala og kallar fram bæði kátínu og trega. Hljómsveitina skipa sjö sprúðlandi hljóðfæraleikarar sem hafa í tíu ár æft saman klezmer-, tangó- og heimstónlist auk frumsaminna laga eftir meðlimi sveitarinnar. Mandólín heldur reglulega tónleika, og árið 2023 kom út diskurinn Sunnudagur í skúrnum.

Að þessu sinni er Mandólín í samstarfi við tangódansarana Bryndísi og Hany, sem hafa dansað tangó í tuttugu ár. Þau ráku tangóskóla í Kaupmannahöfn og ferðuðust víða til að sýna og kenna tangó. Árið 2023 fluttu þau aftur til Íslands, stofnuðu Tangóstúdíó og kenna nú fjölmörgum dansunnendum í Reykjavík sporin. Þau koma einnig fram við ýmis tækifæri.

Kristjana Arngrímsdóttir varð fyrst þekkt með Tjarnarkvartettinum, en hóf sólóferil með útgáfu sinnar fyrstu plötu árið 2000. Hún hefur haldið fjölda tónleika víða um land og gefið út fimm geisladiska. Nýjasti diskur hennar, Ég hitti þig, kom út 2023, og eru öll lögin á diskinum eftir Kristjönu.

Dansarar: Bryndís Halldórsdóttir & Hany Hadaya

Söngur: Kristjana Arngrímsdóttir

Hljómsveitina Mandólín skipa:

Ástvaldur Traustason og Sigríður Ásta Árnadóttir á harmonikkur

Guðrún Árnadóttir og Elísabet Indra Ragnarsdóttir á fiðlur,

Óskar Sturluson á gítar og bouzouki,

Martin Kollmar á klarínett,

Bjarni Bragi Kjartansson á bassa.

Listrænn stjórnandi: Ólöf Ingólfsdóttir

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo