Hinseginleikinn í leikhúsinu
Borgarleikhúsið og Samtökin '78 bjóða ykkur hjartanlega velkomin í þetta spjall um hinseginleikann í leikhúsinu. Leikhúsmenning og hinseginmenning hafa löngum verið samofin og í vetur eru fjögur verk með einhverskonar hinsegin sýnileika á dagskrá Borgarleikhússins.
Við ætlum að ræða um birtingarmyndir hinsegileika út frá þessum fjórum verkum en jafnframt um hinseginleika í leikhúsi almennt.
Dagskrá:
Fundarstjóri - Edda Sigurðardóttir fræðslustýra Samtakanna '78 Ávarp - Sigríður Jónsdóttir, leikhúsfræðingur
Í pallborði verða:
- Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri
- Fannar Arnarsson, leikari Hjörtur
- Jóhann Jónsson, leikari
- Íris Tanja Flygenring, leikkona
- Kristmundur Pétursson, varaformaður Samtakanna ´78
- Valur Freyr Einarsson, leikstjóri og leikari
- Bergrún Andradóttir, skrifstofustýra Samtakanna '78 stýrir umræðum
Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum.
Öll eru hjartanlega velkomin! Aðgangur er ókeypis.