Nýja svið

Að­venta

Sýningu lokið

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Nýja svið

Lengd

2:20 klst (með hléi)

Verð

„Maður þvælist með hundi og hrút um öræfin í desember, leitar að kindum, hreppir slæm veður en kemst lifandi til byggða …“ Svo segir rithöfundurinn Jón Kalman frá í formála þessarar perlu íslenskrar bókmenntasögu, Aðventu Gunnars Gunnarssonar.

Í byrjun desember 1925 hélt Benedikt Sigurjónsson á fjöll með hund og forystusauð í leit að kindum. Þeir tefjast við smölun fyrir aðra, hreppa slæm veður, leitin dregst á langinn fram yfir jól, nestið klárast og vosbúðin er mikil. Loks ná þeir til byggða, þrotnir að kröftum en með nokkrar kindur. Aðventa byggir á þessari eftirleitarferð Benedikts um Mývatnsfjöll en frásögn hans birtist í tímaritinu Eimreiðinni árið 1931 og varð Gunnari innblástur að hans frægustu skáldsögu.

Aðventa er þó svo miklu meira en saga af kindaleit í vondu veðri, því óveður geisa líka innra með fólki. Í sögunni býr harmræn ástarsaga, leit mannsins að trú og tilgangi, afturlit til ævi sem styttist í annan endann og sú sátt sem hverjum manni er nauðsyn að ná við fortíðina svo lifa megi af en farast ella. Þá er sagan óður til náttúrunnar og dýranna og þeim djúprætta kunnugleik sem líklega næst aðeins milli fjarskyldra dýrategunda.

Í uppsetningu Sviðslistahópsins Rauða sófans verður leitast við að miðla þáttum verksins – stórfenglegri náttúru, ríku innra lífi aðalsöguhetjunnar og samspilinu þar á milli. Sú óvenjulega leið er farin að hafa sýninguna að mestu án orða en þess í stað mynda tónlist, myndlist, leiklist og tækni órofa heild. Áhorfandinn dregst inn í iðandi stórhríð en sér þar hjörtu sem bjarma frá sér kærleika og ást.

Í samstarfi við leikhópinn Rauða sófann.

Sýningin er styrkt af Sviðslistasjóði, Launasjóði sviðslistafólks og Gunnarsstofnun.

Frumsýning 3. desember 2023 á Nýja sviði Borgarleikhússins.

Leikarar

Friðgeir Einarsson

Lovísa Ósk Gunnarsdóttir

Listrænir stjórnendur

Leikgerð byggð á Aðventu eftir

Gunnar Gunnarsson

Leikstjóri

Egill Ingibergsson

Leikmynd / teikningar

Þórarinn Blöndal / Móeiður Helgadóttir / Egill Ingibergsson

Búningar / leikgervi

Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir

Tæknimaður / lýsing

Magnús Thorlacius

Tónlist / hljóðmynd

Sigurður Halldórsson

Leikgerð

Móeiður Helgadóttir / Egill Ingibergsson

Framkvæmdastjórn

Davíð Freyr Þórunnarson

Kór

Kvennakórinn Katla

Aðstoðarleikstjórn

Sigríður Ásta Olgeirsdóttir

Aðstoð við myndvinnslu / teikningar

Katrín Ingibergsdóttir / Pétur Arnórsson

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logoorkusalan logoölgerðin logo