Hilmir Snær Guðnason útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1994 og hefur síðan leikið fjöldamörg hlutverk á flestum sviðum landsins auk þess að eiga að baki farsælan feril í kvikmyndum og sjónvarpi. Hilmir hefur síðustu ár starfað jöfnum höndum sem leikari og leikstjóri og leikstýrði síðast Teprunum í Borgarleikhúsinu auk þess sem hann fór með hlutverk í Mátulegum og Lúnu. Hilmir hefur hlotið fjöldamörg verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín svo sem Grímuna, Edduna, Menningarverðlaun DV og Stefaníustjakann.
Takk fyrir stuðninginn
Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.