Ung­frú Ís­land eft­ir Auði Övu Ólafs­dótt­ur í Borga­reik­hús­inu

17. júní 2024

Ungfrú Ísland eftir Auði Övu Ólafsdóttur í Borgareikhúsinu

Á næstunni mun Borgarleikhúsið opinbera verkefnaskrá komandi leikárs og mikil tilhlökkun í loftinu. Af mörgu verður að taka en í janúar n.k mun glæný leikgerð af verðlaunaskáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur, Ungfrú Ísland, líta dagsins ljós í mögnuðu sjónarspili.

Þegar karlmenn fæðast skáld en konum er boðið að verða ungfrú Ísland er hægara sagt en gert fyrir unga skáldkonu vestan úr Dölum að harsla sér völl í höfuðborginni. Sömuleiðis er snúið fyrir stæðilegan sjómann láta drauminn um búningahönnun rætast og unga móður með lítil börn að hafa næði til að yrkja. Leiftrandi húmor, þungur harmur og heillandi fegurð einkenna sögu Auðar Övu en leikstjóri er Gréta Kristín Ómarsdóttir og Bjarni Jónsson er höfundur leikgerðar. Kristinn Arnar Sigurðsson sér um leikmynd, Filippía Elísdóttir búninga og Unnsteinn Manúel gerir hljóðmynd. Með hlutverk Heklu, Jóns Johns og Íseyjar fara Íris Tanja Flygenring, Fannar Arnarsson og Birna Pétursdóttir.

Heim

Listabraut 3

103 Reykjavík

Kt. 420269-6849

Miðasala: 568 8000

midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum. 568 8000
jafnlaunavottun 2023-2026

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logoorkusalan logoölgerðin logo